Könnun: Meirihluti ánægður með yfirtöku Icelandair á WOW air

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu er ánægður með yfirtöku Icelandair á WOW air. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Ertu ánægð/ur með yfirtöku Icelandair á WOW air?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 46,4%
Nei 33,9%
Hlutlaus 19,7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila