Könnun: Meirihluti hlynntur myndavélaeftirliti í fiskiskipum

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að það eigi að setja upp myndavélar um borð í fiskiskipum til þess að koma í veg fyrir brottkast. Þetta kemur fram niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Á að setja upp myndavélaeftirlit í fiskiskip til þess að koma í veg fyrir brottkast?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 72,6%
Nei 24,9%
Hlutlausir 2,4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila