Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að fella eigi þá hvítabirni sem koma til landsins. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að fella ísbirni sem koma til Íslands?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 70,22%
Nei 25%
Hlutlaus 4,78%