Könnun: Rúmlega 87% vilja að Dagur B. Eggertsson segi af sér vegna braggamálsins

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segji af sér vegna braggamálsins. Þetta kom fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um jólin. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Dagur B. Eggertsson borgarstjóri að segja af sér vegna braggamálsins?. Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 87,4%
Nei 10,9%
Hlutlaus 1,6%
Alls voru greidd 978 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila