Skiptar skoðanir eru á meðal þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu hvort Sundabrautin eigi að verða að kosningamáli. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór um helgina en þó voru fleiri sem voru á þeirri skoðun að vilja ekki að Sundabraut yrði að kosningamáli. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að Sundabrautin verði kosningamál?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 45,91%
Já 42,55%
Hlutlaus 11,54%