Könnun: Telja að afnema eigi virðisaukaskatt af lyfseðilskyldum lyfjum

Mikill meirihluti þeirra sem þátt tók í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að afnema eigi virðisaukaskatt af lyfseðilskyldum lyfjum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að afnema virðisaukaskatt af lyfseðilskyldum lyfjum?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 91,7%
Nei 5,5%
Hlutlaus 2,7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila