Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Alþingi eigi að fella úr gildi úrskurð kjararáðs til þess að greiða fyrir samningaviðræðum á vinnumarkaði. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Alþingi að fella úr gildi úrskurð Kjararáðs til þess að greiða fyrir samningum á vinnumarkaði?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 93%
Nei 5,4%
Hlutlaus 1,6%