Könnun: Telja að auka ætti hvalveiðar

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögi telja að auka ætti hvalveiðar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að auka hvalveiðar?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 73,5%
Nei 20,3%
Hlutlaus 6,2%
Alls greiddu 629 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila