Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að ekki eigi að hætta hvalveiðum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að hætta hvalveiðum?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 79,6%
Já 17,3%
Hlutlaus 3,2%
Alls voru greidd 526 atkvæði