Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að ekki eigi að leyfa fjölkvæni á Íslandi. Þetta kemur fram í niðustöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaða könnunarinnar var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að leyfa fjölkvæni á Íslandi?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 82,4%
Já 16,7%
Hlutlaus 1,1%