Könnun: Telja að ekki eigi allir að fá að gefa blóð

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að ekki eigi allir að fá að gefa blóð. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Eiga allir að fá að gefa blóð? Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 84,6%
Já 12,6%
Hlutlaus 2,8%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila