Könnun Telja að ekki hafi verið rétt að víkja Karli Gauta og Ólafi Ísleifssyni úr Flokki fólksins

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að ekki hafi verið rétt að víkja þeim Karli Gauta Hjaltasyni og Ólafi Ísleifssyni úr Flokki fólksins vegna Klaustursmálsins. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Var rétt að víkja þeim Karli Gauta Hjaltasyni og Ólafi Ísleifssyni úr Flokki fólksins vegna klaustursmálsins?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 56,4%
Já 41,3%
Hlutlaus 2,9%
Atkvæði 718 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila