Könnun: Telja að Katrín hafi beitt þrýstingi til þess að koma Sigríði Andersen úr embætti

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi beitt þrýstingi í þeim tilgangi að koma Sigríði Andersen úr embætti dómsmálaráðherra. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaða könnunarinnar var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi beitt þrýstingi til þess að koma Sigríði Andersen úr embætti dómsmálaráðherra?. Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 84%
Nei 12%
Hlutlausir 4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila