Könnun: Telja að lífskjör á Íslandi batni ekki gangi Ísland í Evrópusambandið

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að lífskjör muni ekki batna ef Ísland gangi í Evrópusambandið. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að lífskjör íslendinga batni ef Ísland gengur í Evrópusambandið?.
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 85%
Já 13,3%
Hlutlaus 2%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila