Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Reykjavíkurborg hafi vanrækt hreinsun gatna borgarinnar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að borgin hafi vanrækt hreinsun gatna?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 92,7 %
Nei 5,2%
Hlutlaus 2%