Könnun: Telja sjávarútvegsstefnuna ekki vera skynsamlega

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja ríkjandi sjávarútvegsstefnu ekki vera skynsamlega. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Er sjávarútvegsstefnan skynsamleg?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 77,3%
Já 17,7%
Hlutlaus 4,9%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila