Könnun: Vilja að réttarhöld yfir vændiskaupendum verði opin

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að réttarhöld yfir vændiskaupendum verði opin. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Eiga réttarhöld yfir vændiskaupendum að vera opin?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 51,2%
Nei 41,8%
Hlutlaus 7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila