Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að íslenska ríkið láni Íslandspósti til þess að vega á móti tapi fyrirtækisins. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á íslenska ríkið að lána Íslandspósti?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 74,1%
Já 17,4%
Hlutlaus 8,5%