Könnun: Vilja ekki að settir verði á vegatollar

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að settir verði vegatollar á leiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að setja vegatolla á helstu leiðir til og frá höfuðborginni?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 77,4%
Já 19%
Hlutlaus 3,6%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila