Könnun: Vilja Vigdísi sem borgarstjóra

Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins.

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins verði næsti borgarstjóri Reykjavíkur. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Þá vildu næst flestir fá Eyþór Arnalds borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem borgarstjóra. Niðurstaða könnunarinnar var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt, Hvern vilt þú hafa sem borgarstjóra í Reykjavík og var niðurstaðan eftirfarandi:

Vigdísi Hauksdóttur 42,2%
Eyþór Arnalds 37,8%
Kolbrúnu Baldursdóttur 7,9%
Sönnu Magdalenu Mörtudóttur 5,7%
Dag B. Eggertsson 5,1%
Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur 0,79%
Líf Magneudóttur 0,79%
Dóru Björt Guðjónsdóttur 0%
Alls voru greidd 507 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila