Sveitastjórnaryfirvöld í bænum Umeå í Svíþjóð hafa lagt blátt bann við kristilegum boðskap á Krubban skóladagheimilinu. Áður hafði verið verið sú hefð við lýði á dagheimilinu að biðja borðbænir og ræða um biblíuna og boðskap hennar. Að mati sveitarstjórnaryfirvalda brýtur slíkt í bága við lög um fræðslustofnanir og því hefur sveitarfélagið ítrekað það við dagheimilið að öllu slíku skuli vera hætt þegar í stað. Eftir ítrekun yfirvalda hefur skólinn tekið upp þá stefnu að í stað borðbænar þakki börnin fyrir sólina, rigninguna og matinn.