Kvennaathvarfið hlaut í dag Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2017 fyrir að
beina sjónum sínum í auknum mæli að þörfum og réttindum barna sem í athvarfinu búa hverju sinni. Í tilkynningu frá Barnaheillum segir að engum geti dulist það gríðarmikilvæga starf sem Kvennaathvarfið hafi frá opnun þess, árið 1982, unnið til verndar konum og börnum sem neyðst hafa til að flýja heimili sín vegna ofbeldis. Konur og börn þeirra geta dvalist í athvarfinu þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna ofbeldis af hálfu maka eða annarra heimilismanna.
Barnaheill veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember. Viðurkenningin er afhent til að vekja athygli á Barnasáttmálanum og mikilvægi þess að íslenskt samfélag standi vörð um mannréttindi barna.
Afhending viðurkenningarinnar fór fram í veislusal veitingastaðarins Nauthóls. Kolbrún Baldursdóttir,
formaður Barnaheilla, flutti ávarp og tilkynnti um viðurkenningarhafann sem steig í pontu og sagði nokkur orð. Guðmundur Steingrímsson, sem situr í stjórn Barnaheilla, lék á harmóníku við upphaf athafnarinnar. Jón Ragnar Jónsson, sem einnig á sæti í stjórninni, flutti tónlistaratriði. Fulltrúar Ungmennaráðs Barnaheilla, þau Herdís Ágústa Kristjánsdóttir Linnet, Ingibjörg Ragnheiður Linnet, Gunnar Ágústsson, Najmo Fiyasko og Kolbeinn Þorsteinsson fluttu ávarp og tónlistaratriði. Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna,
stýrði athöfninni.