Kvenréttindafélagi Íslands falið að sinna jafnréttisfræðslu fyrir hönd stjórnvalda

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður stjórnar Kvenréttindafélgasins, undirrita samstarfssamninginn

Forsætisráðuneytið og Kvenréttindafélag Íslands hafa undirritað samning um að félagið sinni fræðslu, námskeiðshaldi og upplýsingagjöf um jafnrétti kynjanna á innlendum og erlendum vettvangi. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður stjórnar Kvenréttindafélagsins undirrituðu samninginn í vikunni. Katrín Jakobsdóttir segir félagið hafa gengt mikilvægu hlutverki í samfélaginu þann tíma sem það hefur starfað en félagið var stofnað fyrir rúmri öld. „Kvenréttindafélagið hefur gegnt afar mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi í rúma öld. Við vitum að þekking er mikilvægasta tækið til að takast á við kynjakerfið og þess vegna skiptir miklu að rótgróið félag eins og Kvenréttindafélagið hafi tök á að sinna fræðslu- og upplýsingamálum.“ segir Katrín.

Í tilkynningu segir að meginmarkmiðið samningsins sé að efla fræðslu fyrir almenning um kynjajafnréttismál auk þess að Kvenréttindafélagið sinni árlegri útgáfu tímaritsins 19. júní, opnum fundum, útgáfu námsefnis um jafnréttismál á rafrænu formi eða prenti og með gerð upplýsingaefnis á íslensku og ensku til birtingar á vefsvæði félagsins.
Auk almennrar fræðslu mun Kvenréttindafélagið meðal annars standa að:
  • Námskeiði fyrir konur, þar á meðal konur af erlendum uppruna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, og einnig um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, með það að markmiði að auka þátttöku allra kvenna í umræðu og starfi á opinberum vettvangi.
  • Árlegum samráðsfundum með konum á Alþingi og í sveitarstjórnum um leiðir til að auka þátttöku kvenna og styrkja stöðu þeirra á vettvangi stjórnmálanna.
  • Árlegum samráðsfundum með kennurum sem kenna kynja- og jafnréttisfræði á öllum skólastigum í því augnamiði að auka þekkingu og færni kennara á sviði jafnréttismála.
  • Árlegu kynjaþingi frjálsra félagasamtaka á sviði jafnréttismála.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila