Kynna tillögur um framtíðarstefnu í jafnlaunamálum

vinnumarkadurAðgerðahópur stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins kynna tillögur um framtíðarstefnu í jafnlaunamálum á morgunverðarfundi á Reykjavík Hilton Nordica, mánudaginn 24. október næstkomandi kl. 8.00–10.30.
Í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu segir að samhliða kynningu á tillögum aðgerðahópsins muni Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, opna vefsíðu jafnlaunastaðalsins og kynna nýtt jafnlaunamerki. Á fundinum verður jafnframt sagt frá tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðalsins og forystufólk atvinnulífsins tekur þátt í pallborðsumræðum um hvernig hrinda megi tillögum um framtíðarstefnu í jafnlaunamálum í framkvæmd.
Sérstakur gestur fundarins er dr. Kjersti Misje Østbakken, rannsakandi við Social Research Institute í Osló. Kjersti hefur um árabil lagt stund á rannsóknir á sviði vinnumarkaðsfræða og jafnlaunamála. Í fyrirlestrinum veltir hún upp spurningunni um af hverju gangi eins hægt og raun ber vitni að útrýma kynbundnum launamun . Hún segir að á árunum 2002–2014 hafi launamunur kynjanna aðeins minnkað um tvö prósentustig í Noregi; úr 14% í 12% og að nýjustu tölur sýni að meðaltímakaup norskra kvenna sé svipað og það var hjá körlum fyrir sex árum. Líkt og rannsóknir aðgerðahóps um launajafnrétti sýna segir Kjersti að kynjaskipting starfa á vinnumarkaði skýri að einhverju leyti launamuninn. Konur og karlar gegni ólíkum störfum og kynjaskipting milli starfsgreina sé mjög áberandi í Noregi líkt og á Íslandi. Laun og launaþróun sé mismunandi milli starfsgreina og almennt megi segja að þær greinar sem karlar velja þyki verðmætari á vinnumarkaði. Þegar laun kvenna og karla í sömu atvinnugreinum eru borin saman þá sjáum við að þrátt fyrir sambærilega menntun, aldur og starfsaldur þá eru laun karla samt um 7% hærri.
Fram kemur í tilkynningunni að verkefni aðgerðahópsins hafi meðal annars falist í því að vinna að samræmingu rannsókna á kynbundnum launamun, annast kynningu og fræðslu vegna innleiðingar jafnlaunastaðals, sinna upplýsingamiðlun og ráðgjöf um launajafnrétti og gerð tillagna um framtíðarstefnu í jafnlaunamálum. Í maí 2015 kynnti hópurinn niðurstöður rannsóknarverkefna hópsins á fundinum Kyn, starfsframi og laun. Annars vegar er um að ræða fyrstu rannsókn sem gerð hefur verið hér á landi á kynbundnum launamun og tekur til vinnumarkaðarins í heild og hins vegar rannsóknarskýrslu um stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði. Tillögur hópsins um framtíðarstefnu í jafnlaunamálum byggjast á niðurstöðum rannsóknarverkefna hópsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila