Kynntu samstarfs og fjárfestingartækifæri hjá Endureisnar og þróunarbanka Evrópu

Fjárfestingartækifæri og tækifæri til samstarfs milli fyrir íslenskra fyrirtækja og Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu voru kynnt á fundi í Hörpu í dag. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Íslandsstofa og Íslenski jarðvarmaklasinn stóðu að fundinum þar sem einnig var farið almennt yfir starfsemi bankans.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Enzo Quattrociocche, aðalritari EBRD opnuðu fundinn og benti Bjarni í erindi sínu á mikilvægi þess að íslensk fyrirtæki og fjárfestar fái reglulega kynningu á þeim tækifærum sem felast í að starfa með stofnunum sem Ísland á aðild að, á borð við EBRD og Innviðafjárfestingabanka Asíu. „Hér blasa við tækifæri fyrir ráðgjafafyrirtæki okkar sem vilja starfa á alþjóðavettvangi og byggja á sérþekkingu okkar, faglegri ráðgjöf og reynslu af nýtingu orkulinda hér á Íslandi,“ sagði Bjarni.
Sérfræðingar EBRD gerðu á fundinum grein fyrir starfsemi bankans og með hvaða hætti hann getur unnið með íslenskum fyrirtækjum og fjárfestum. Fram kom að þeir telji að tækifærin liggi einkum á þeim möguleikum að sérfræðingar tækju að sér störf sem ráðgjafar í verkefnum á vegum bankans, m.a. í orkutengdum verkefnum. Þá eigi íslensk fyrirtæki möguleika á að fá bankann sem fjármögnunaraðila að verkefnum eða starfa með beinum hætti með honum að fjárfestingum á starfssvæðum hans.
Endurreisnar- og þróunarbanki Evrópu (EBRD) er alþjóðleg fjármálastofnun sem Ísland á aðild að, sem fjármagnar aðallega verkefni á vegum einkafyrirtækja. Starfsemi bankans nær til yfir 30 landa – frá Austur-Evrópu til Mið-Asíu og Suður- og Austur-Miðjarðarhafs – og er sérstök áhersla lögð á þróun og fjármögnun verkefna á sviði endurnýjanlegrar orku og umhverfisvænna orkugjafa. Alls námu verkefni undir hatti „Green Economic Transition“ um 43% af heildarumfangi fjárfestinga bankans á árinu 2017.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila