Talsverðar tafir hafa orðið á meðferð Samkeppniseftirlitsins í máli Gray Line gegn Isavia vegna ofurgjaldtöku af hópferðabílum á Keflavíkurflugvelli. Logos lögfræðiþjónusta, sem tekið hafði að sér að gæta hagsmuna Gray Line og annast samskipti við Samkeppniseftirlitið fyrir Gray Line, sagði sig óvænt frá verkefninu í byrjun mars. Í fréttatilkynningu frá Gray Line segir að Logos hafi látið undan þrýstingi Landsbréfa, sem eru í eigu Landsbankans, en Hópbílar ehf eru í eigu Landsbréfa. Því hafi þurft að setja nýja lögfræðiþjónustu inn í málið sem hafi tafist vegna kröfu Landsbréfa.
Fram kemur í tilkynningu Gray Line að Landsbréf ráði eignarhaldi á Hópbílum í gegnum framtakssjóðinn Horn 3, en Hópbílar er annað af tveimur fyrirtækjum sem sömdu um háar greiðslur til Isavia fyrir aðstöðu hópferðabíla fyrir framan flugstöðina á Keflavíkurflugvelli.
Þá segir í tilkynningunni að engin formlegar skýringar hafi fengist á því hvers vegna Landsbréf, eigandi Hópbíla, gerði þá kröfu að Logos hætti hagsmunagæslunni fyrir Gray Line, enda hafi kæra Gray Line á hendur Isavia á engan hátt beinst að Hópbílum og Hópbílar séu ekki aðili að málinu.
„Við erum furðu lostin yfir þessum afskiptum Landsbréfa og skiljum ekki hvað býr að baki. Logos hefur lengi sinnt allri lögfræðiþjónustu fyrir Gray Line. Með ólíkindum er að Landsbréf skuli hafa á hornum sér að það ágæta fyrirtæki starfi fyrir okkur. Það að Landsbréf beiti sér af slíkri hörku bendir til að Hópbílar telji sig hafa sameiginlega hagsmuni með Isavia af því að eyðileggja fyrir málatilbúnaði Gray Line. Þeir hagsmunir hljóta að vera gríðarlega miklir úr því að Landsbréf setja þá pressu á Logos að segja viðskiptavini upp með þessum hætti. En pottþétt eru það ekki hagsmunir neytenda sem eigandi Hópbíla er að hugsa um,“ segir Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Landsbréfa er sjóðastýringarfyrirtækið í eigu Landsbankans, sem er í eigu íslenska ríkisins. Helgi Þór Arason framkvæmdastjóri Landsbréfa er formaður stjórnar framtakssjóðsins Horns 3, sem á allt hlutafé Hópbíla. Hermann Már Þórisson starfsmaður Landsbréfa er framkvæmdastjóri Horns 3. Hluthafar eru rúmlega 30 talsins og samanstanda af lífeyrissjóðum, fjármálafyrirtækjum og fagfjárfestum.