Landspítalanum falin fagleg og fjárhagsleg ábyrgð vegna S-merktra lyfja

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að færa fjárhagslega ábyrgð og umsýslu svokallaðra S-merktra og leyfisskyldra lyfja frá Sjúkratryggingum Íslands til Landspítala. Þetta er gert með það að leiðarljósi að fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á innleiðingu og notkun nýrra og dýrra lyfja í landinu fari  betur saman með þessu móti.
S-merkt lyf eru til dæmis sérhæfð, dýr og vandmeðfarin lyf, notuð á sjúkrahúsum eða í tengslum við þau vegna sérhæfðrar meðferðar og er ávísun þeirra háð ströngum skilyrðum. Leyfisskyld lyf eru lyf sem eingöngu eru notuð í samræmi við klínískar leiðbeiningar og eru að jafnaði kostnaðarsöm og vandmeðfarin.
Ákvörðunin tekur mið af þeim áherslum sem fram koma í þingsályktun um lyfjastefnu til ársins 2022 þar sem segir meðal annars: „Ferli ákvarðanatöku um notkun leyfisskyldra lyfja verði styrkt og unnið að bættu fyrirkomulagi á umsjón og eftirliti með afgreiðslu S-merktra og leyfisskyldra lyfja og tryggt verði betur að saman fari fagleg og fjárhagsleg ábyrgð með líkum hætti og annars staðar á Norðurlöndunum, einkum í Danmörku og Noregi.“ Landspítalanum hefur verið falið að hefja undirbúning að breytingunni í samráði við Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisstofnanir.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila