Ríkisstjórnin og skrifstofa Alþingis hafa ákveðið að leggja fé af mörkum til að heiðra minningu Jóns Magnússonar sem var forsætisráðherra þegar Ísland öðlaðist fullveldi 1. desember 1918.
Í tilkynningu segir að Minjastofnun Íslands hafi verið falið að lagfæra leiði og legstein Jóns Magnússonar í Hólavallagarði í samstarfi við Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er ásigkomulag legsteinsins og leiðisins ekki gott. Áletruð plata á legsteininum var fjarlægð fyrir nokkru vegna þess að hún var farin að brotna og legsteinninn sjálfur er laskaður. Legsteinn Jóns stendur við hlið legsteins Péturs biskups Péturssonar og eru þeir um flest nákvæmlega eins. Saman fara þar einhverjir íburðarmestu minnisvarðar í Hólavallagarði.