Leita ökumanns vegna umferðarslyss

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns rauðrar fólksbifreiðar sem ók á sjö ára dreng á reiðhjóli við Árskóga í Reykjavík mánudaginn 4.júní síðastliðinn.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að drengurinn hafi verið að hjóla á göngustíg sem liggur aftan við bensínstöð N1 í Skógarseli þegar slysið varð.
Drengurinn slasaðist talsvert en ökumaður bifreiðarinnar ók rakleiðis á brott.

Í tilkynningu lögreglu segir „Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi.

Lögreglan biður ökumann rauðu fólksbifreiðarinnar um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að  hafa samband í síma 444 1000.
Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið sigrun.jonasdottir@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila