Leitað að Birnu við Hafnarfjarðarhöfn

loggubillnyr-1Lögreglan hefur lokað aðkomu við Hafnarfjarðarhöfn eftir að vegfarandi fann þar skó sömu gerðar og Birna Brjánsdóttir var í þegar hún hvarf aðfararnótt laugardags. Þá herma heimildir að kafarar á vegum sérsveitar ríkislögreglustjóra séu komnir á svæðið til leitar en skórinn er sagður hafa fundist í grennd við athafnasvæði Atlantsolíu. Lögreglan gefur engar upplýsingar um málið að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila