Svo virðist sem lekahneykslið sem upp kom í Svíþjóð fyrr í vikunni sé farið að valda ókyrrð á pólitíska sviðinu í Svíþjóð. Í vefriti Expressen í dag er það haft eftir heimildarnanni að Stefan Löfen hóti því að boða til kosninga ef stjórnarandstaðan leggi fram vantrauststillögu eða fari fram á afsögn þriggja ráðherra stjórnarinnar, þ,e innanríkisráðherra, samgöngumálaráðherra og varnarmálaráðherra. Heimildir herma að ráðherrarnir þrír hafi vitað af lekanum og jafnframt reynt að koma í veg fyrir að upplýsingar um lekann kæmu upp á yfirborðið. Samkvæmt sænskum fjölmiðlum hafa þeir aðilar sem bera ábyrgð á lekanum brotið gegn að minnsta kosti þremur greinum laga um persónuvernd með því að sniðganga öryggisprófun þeirra einstaklinga sem fengu aðgang að upplýsingunum, sem meðal annars sneru að hernaðarlegum þáttum. Óttast er að upplýsingarnar kunni að hafa komist í rangar hendur í kjölfar lekans.