Lést eftir hnífaárás á Austurvelli

Karlmaður sem varð fyrir hnífaárás á Austurvelli um síðustu helgi er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Annar maður sem slasaðist í sömu árás hefur verið útskrifaður á sjúkrahúsi en karlmaður um þrítugt sem grunaður er um árásina á mennina tvo með fyrrgreindum hætti situr í gæsluvarðhaldi. Fram kemur í tilkynningunni að rannsókn málsins miði vel áfram.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila