Hafrannsóknarstofnun hefur lagt til við Sjávarútvegs og landbúnaðaráðuneytið að heimila veiðar á 322 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári. Tillaga stofnunarinnar er byggð á niðurstöðum rannsóknar á ástandi stofnsins á svæðinu í síðasta mánuði. Síðasta haust þegar ástand stofnsins var kannað þótti ástand hans vera viðkvæmt svo ekki þótti forsvaranlegt að heimila veiðar. Ástand rækjustofnsins víða um land hefur verið í lakara lagi undanfarin ár og því hefur dregið talsvert úr veiðum almennt en ekki hefur enn tekist að kortleggja hvers vegna ástand stofnsins hér við land hefur farið versnandi.