Gunnlaugur Ingvarsson einn af forvígismönnun Íslensku þjóðfylkingarinnar segir nýju útlendingalögin sem Íslenska þjóðfylkingin mótmælti á Austuvelli í gær vera stórgölluð og valda þeirri hættu að til landsins geti komið stórhættulegt fólk óáreitt. Gunnlaugur sem var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur í síðdegisútvarpinu í dag segir að flokkurinn sé ekki að tala fyrir því að stöðva allan straum flóttamanna til Íslands heldur því að herða löggjöf um útlendinga til muna og fara svipaða leið og norðmenn hafa farið. Þá segir hann að sú staðreynd að útlendingar geti neitað yfirvöldum um að kanna þeirra sé út í hött “ þetta er náttúrulega fáránleiki fáránleikans, hérna gætum við bara fengið ISIS liða sem hefðu afhöfðað nokkra, þeir gætu hæglega komið hérna inn og hefðu allan rétt sín megin til að flytjast hér inn og fá stöðu hælisleitenda, þetta er það sem er hrikalegt við þessi lög, litla Pírata Ísland er að verða sér að athlægi„,segir Gunnlaugur.