Ljúka Færeyjasöfnun á sunnudag

faereyjavinirAðstandendur Færeyjasöfnunar16 hafa nú stofnað viðburðinn Styðjum Færeyinga! á Facebook þar sem öllum er boðið að kvitta fyrir stuðning við söfnunina og/eða senda Færeyingum kveðju. Þar eru þegar farnar að safnast hlýlegar kveðjur frá Íslendingum til frænda okkar í Færeyjum. Fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum söfnunarinnar að það eignartjón sem varð á mannvirkjum bætt af tryggingarfélögum en búnaður í eigu björgunarsveita fáist ekki bættur þar sem hann er ótryggður. Því hefur verið ákveðið að það fé sem safnast í söfnuninni sem þegar hefur náð hátt á fimmtu milljón króna verði afhent Landssambandi björgunarfélaganna í Færeyjum um næstu mánaðarmót. Þeim sem vilja taka þátt í að leggja söfnuninni lið með fjárframlagi er bent á reikningsnúmer söfnunarinnar 1161-26-006000.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila