Loftlagsmálin eru orðinn iðnaður þar sem vísindamenn og fleiri aðilar nýta sér il þess að ná sér í styrki. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Jónasar Elíassonar prófessors emeritus í þætti Guðmundar Franklín Jónssonar í dag. Jónas bendir á að haldið er fram ýmis konar vafasömum fullyrðingum í loftslagsmálum í þessum kenningum, t,d þeirri fullyrðingu að hægt sé að stjórna veðrinu með því að stýra mengun “ það er alveg ljóst að það stjórnar enginn veðrinu, og það verður aldrei hægt, það fer bara eigin leiðir, það er heldur engin leið til þess að rannsaka og spá fyrir um hlýnun fram í framtíðina, til þess vantar of margar forsendur inn í útreikninganna og það er engin leið til þess að ná utan um þær forsendur„,segir Jónas. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.