Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á rauða Kia bifreið í tengslum við rannsókn á hvarfi Birnu Brjánsdóttur sem leitað hefur verið að frá því á laugardag. Bifreiðin var í umsjá starfsmanns fyrirtækis við Hlíðasmára en hann hafði tekið bifreiðina á leigu í gær. Starfsmaðurinn er því ekki talinn tengjast málinu en lögreglu þótti ástæða til þess að kanna bifreiðina nánar þar sem hún passar við lýsinguna á þeirri bifreið sem leitað hefur verið að vegna rannsóknar málsins. Lögreglan gefur ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.