Lögregla lýsir eftir vitnum að eftirför

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að eftirför sem átti sér stað í nótt, aðfararnótt 6.6.2018, en þá veitti lögreglan ljósbrúnum Skoda Octavia, eftirför um borgina. Lögreglan biður alla þá sem kunna hafa orðið vitni að atvikinu að senda lögreglunni tölvupóst á nefangið 0436@lrh.is eða 0725@lrh.is með stuttri lýsingu á því að viðkomandi sá. Þá bendir lögreglan á að hægt er að hafa samband í gegnum fésbókarsíðu embættisins en slóðin er www.facebook.com/logreglan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila