Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir ökumanni steingrárrar fólksbifreiðar sem lenti í árekstri við hvítan Hyundai l10 síðastliðinn fimmtudag á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar um kl.16:20.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að umferðaróhappið hafi verið tilkynnt til lögreglu í gær.
Málavextir eru þeir að Hyundai bifreiðinni var ekið austur Miklubraut, á miðrein, og þeirri steingráu suður Grensásveg þegar áreksturinn varð, en ökumaðurinn síðarnefndu bifreiðarinnar skeytti í engu um áreksturinn og ók rakleiðis af vettvangi.
Lögreglan biður þá sem kunna að hafa séð umrætt atvik eða búa yfir vitneskju um málið að hafa samband í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gisli.arnason@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en lögreglan hvetur jafnframt ökumanninn til að gefa sig fram.