Lögreglan lýsir eftir manni

Lögreglan óskar eftir að ná tali af þessum manni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til meðferðar. Maðurinn er beðinn vinsamlegast um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. Þá eru þeir sem vita hver maðurinn er, eða hvar hann er niðurkominn enn fremur beðnir um að hafa samband við lögreglu, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið sigrun.jonasdottir@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila