Lögreglan lýsir eftir Rimantas Rimkus

Rimantas Rimkus sem lýst er eftir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Rimantas Rimkus, 38 ára. Hann er
187 sm á hæð, 74 kg og með dökkt, stutt hár. Ekkert hefur spurst til hans
frá því um síðustu mánaðamót, en málið var tilkynnt lögreglu síðdegis í gær.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Rimantas eru beðnir um að hafa
samband við lögreglu í síma 112, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í
einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila