Lögreglan lýsir eftir vitnum að líkamsárás

loggubillLögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á Bíldshöfða í  Reykjavík sl. föstudag, 10. febrúar, kl. 16.31. Atvikið átti sér stað við innkeyrsluna að Krónunni við Húsgagnahöllina. Þar veittist karl að konu á fertugsaldri, en tveir vegfarendur komu henni til aðstoðar. Lögreglan biður þá, sem og aðra sem kunna að hafa orðið vitni að líkamsárásinni, að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila