Sérsveit lögreglu réðist til inngöngu í fjölbýlishús í Manchester í hádeginu í tengslum við rannsóknina á hryðjuverkaárásinni í Manchester Arena. Að sögn sjónvarvotta fóru þungvopnaðir lögreglumennirnir inn í íbúð á þriðju hæð en rétt áður en lögregla réðist til inngöngu fór brunaboði hússins í gang. Öðrum íbúum hússins var gert að yfirgefa fjölbýlishúsið á meðan lögregluaðgerðum stendur en ekki hafa fengist upplýsingar um lögregluaðgerðina að öðru leyti. Fjórir hafa verið handteknir í þágu rannsóknar málsins.