Lögreglan óskar eftir að ná tali af manni

Þekkir þú manninn á myndinni?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar upplýsinga í tengslum við mál sem er til rannsóknar hjá embættinu.

Á meðfylgjandi mynd, þótt óskýr sé, má greina ökumann bifreiðar sem óskað er eftir að ná tali af. Maðurinn er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.

Þeir sem vita hver maðurinn er, eða hvar hann er niðurkominn, eru sömuleiðis beðnir um að hafa samband við lögreglu, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið unnar.astthorsson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila