Leiðtogi UDI flokksins í Frakklandi hvetur Emmanuel Macron Frakklandsforseta til að lýsa yfir neyðarástandi eftir róstur og skemmdir á búðum og veitingahúsum í kjölfar mótmæla Gulvestunga í París s.l. laugardag. Jean-Christophe Lagarde sagði „það er kominn tími til að ríkisstjórnin sýni í verki hvað hún meinar með orðunum „aldrei aftur“ 1. desember.“ Neyðarlög myndu leyfa lögreglunni að „taka skemmdarstarfsmenn úr umferð“ og gefa yfirvöldum „kraft til að banna mótmæli“ sem skúrkar væru búin að yfirtaka til að velta lýðveldinu um koll“.
Forsætisráðherra Frakka Edouard hefur auglýst bann á mótmælum Gulvestunga á verzlunargötunni Champs Elysées eftir ólæti fyrri helgar. Lögreglustjóra Parísar Michel Delpuech var vikið úr störfum. Lögreglan undirbýr notkun nýrra verkfæra eins og dróna og kvikmyndavéla til að nota m.a. við réttarhöld gegn mótmælendum. Lögreglan hefur verið gagnrýnd fyrir ofbeitingu valds og SÞ rannsakar nú hvort svo sé. Yfirvöld tala um glæpastarfsemi meðal Gulvestunga þar sem ráðist er á búðir og kveikt í bílum og öðru. Frönsk tryggingarfélög sögðu í vikunni að skaðinn vegna mótmælanna næmu allt að 170 milljónum evra en yfir 10 þúsund tryggingaerindi hafa borist síðan mótmælin hófust. Samband lítilla og meðalstórra fyrirtækja sagði að „Núna er komið meira en nóg. Það sem gerðist á Champs Elysées s.l. laugardag er endurtekning á því sem búðareigendur hafa áður þurft að ganga gegnum.“ Talsmaður Angelu Merkel sagði að Þjóðverjar styddu viðleitni Macrons Frakklandsforseta til að halda uppi lögum og reglu. Sjá nánar hér.