Lilja Alfreðsdóttir utanríkiráðherra segir kjaramál ellilífeyrisþega vera eitt stærstu málum sem liggja á borði stjórnvalda. Lilja sem var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur í síðdegisútvarpinu í dag segir að hún hafi í kosningabaráttunni hitt fólk sem hafi lýst sínum efnum og aðstæðum “ ég verð að segja að mikið af því sem ég hef verið að heyra hjá fólki sem hefur verið að segja mér sínar sögur, jafnvel aðilar sem hafa misst maka sinn og standa kannski ekki mjög sterkt vegna þessa og vegna þessa lífeyrissjóðsmála, þetta kemur virkilega við mann, maður sér það auðvitað að þetta er eitt stærsta málið sem við stöndum frammi fyrir, að tryggja það að þeir sem hafa byggt upp landið okkar geti búið við áhyggjulaust ævikvöld„,segir Lilja.