Byggðastofnun stendur fyrir málþingi um raforkumál á Íslandi þriðjudaginn 21. nóvember næst komandi í Hofi á Akureyri. Málþingið hefst kl. 13:00 og stendur til kl. 16:30. Boðið verður upp á léttan hádegisverð frá kl. 12:00.
Meginefni málþingsins er flutningskerfi raforku á Íslandi. Atvinnufyrirtæki víða um land þurfa raforku til starfsemi sinnar, bæði til að fá hreina orku í stað orku sem framleidd er með olíu vegna starfsemi sem þegar er til staðar og eins til að geta aukið við eða farið út í nýja starfsemi. Á vissum svæðum er orkuöryggi ekki nægjanlega tryggt og er Akureyri eitt af þeim svæðum sem býr við skert orkuöryggi. Ein helsta ástæða þess að viss svæði búi við skert orkuöryggi er sú að endurnýjun flutningskerfis raforku hefur ekki átt sér stað og illa hefur gengið að koma endurnýjun lína eða nýjum línuleiðum í gegnum umsóknarferli og á framkvæmdastig. Þessi staða kemur niður á atvinnulífi, ekki síst úti á landsbyggðinni.
Skiptar skoðanir eru um hvar raforkulínur eigi að vera, hvort fara eigi um byggð eða yfir hálendið og hvort leggja eigi loftlínur eða jarðstrengi svo dæmi séu nefnd.
Tilgangur málþingsins er að skapa umræðuvettvang þar sem aðilar sem hafa látið sig málið varða koma saman og gera grein fyrir sinni sýn á málin. Fulltrúar Orkustofnunar, Landsnets, Skipulagsstofnunar, Akureyrarbæjar, Ísfélags Vestmannaeyja, Landverndar og landeigenda munu hafa framsögur. Að framsögum loknum verða almennar umræður.