Menningararfur mótar sterkari samfélög

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setti Menningararfsárið formlega í Þjóðminjasafninu í vikunni.  Árið 2018 hefur verið útnefnt „Menningararfsár Evrópu“ (European Year of Cultural Heritage 2018) af Evrópuráðinu og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Á menningararfsárinu fer fram fjöldi viðburða sem leggja áherslu á evrópsk tengsl og sameiginlegan menningararf.
Meginþema menningararfsársins er gildi menningararfsins fyrir einstaklinga og samfélög. Á Íslandi hefur verið ákveðið að leggja sérstaka áherslu á strandmenningu en undir hana geta fallið handverk, fornleifar, hús og mannvirki, gripir, bátar, sögur og ótal margt fleira.
Við athöfnina í Þjóðminjasafninu vék ráðherra að mikilvægu hlutverki menningararfsins þegar kemur að mótun samfélaga „Það er mikilvægt verkefni að rannsaka menningararf okkar, en ekki síðra verkefni að varðveita hann fyrir komandi kynslóðir og varðveita heimildir um hann og minjar. Og loks þarf að miðla upplýsingum um menningararfinn, um rannsóknir á honum og um varðveislu hans fyrir komandi kynslóðir. Miðlunin er forsenda þess að hægt sé að skapa skilning á gildi menningararfsins og afla aukins fjár til að sinna verkefnum, og því skiptir miklu máli hvernig til tekst á þessu sviði.“sagði Lilja.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila