Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra telur ekki líklegt að fimm flokka stjórn gangi upp til lengdar takist Katrínu Jakobsdóttur að mynda slíka stjórn. Sigmundur sem var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar í síðdegisútvarpinu í vikunni segir að mesta hættan við slíka stjórn sé um leið besti kostur hennar „ að þau muni ekki geta komið sér saman hvað eigi að gera, að það verði svona stjórnleysi ríkjandi og ástæðan fyrir því að ég segi að það sé kostur líka er sú að fyrir vikið held ég og vonandi ekki geta framkvæmt ýmis þau mál sem að þau myndu ná að framkvæma ella og gætu verið skaðleg fyrir samfélagið„,segir Sigmundur.