Miðflokksfélag Suðurkjördæmis stofnað

Una María Óskarsdóttir formaður Miðflokksfélags Suðvesturkjördæmis. Photo/Geirix

Miðflokksfélag Suðvesturkjördæmis var formlega stofnað á fjölmennum fundi í Glersalnum í Kópavogi í gærkvöldi, 17. janúar, en gestir fundarins voru þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Suðvesturkjördæmis.

 Í tilkynningu frá félaginu segir að Miðflokksfélag Suðvesturkjördæmis sé annað kjördæmafélag Miðflokksins sem stofnað er, en nýlega var stofnað Miðflokksfélag í Suðurkjördæmi. Þá segir að Félagið hafi þann tilgang að vinna að bættum hag íbúa Suðvesturkjördæmis og gæta hagsmuna þeirra á vettvangi lands- og sveitarstjórnarmála. Félagið hyggist virkja rödd fólks í Suðvesturkjördæmi, koma skynsamlegum hugmyndum almennings í framkvæmd, hafa áhrif á og móta stefnu Miðflokksins og starfa innan hans.
 Í stjórn Miðflokksfélags Suðvesturkjördæmis voru kosin þau Una María Óskarsdóttir formaður, Örn Bergmann Jónsson, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Þórarinn Þórhallsson og Halldóra Baldursdóttir. Varastjórn skipa þau Aðalsteinn J. Magnússon, Sigurrós Indriðadóttir og Einar Baldursson.
 Þá segir að lokum í tilkynningunni að Miðflokksfélag Suðvesturkjördæmis muni meðal annars standa fyrir öflugu félagsstarfi og hafa umsjón með undirbúningi framboðs Miðflokksins til sveitarstjórna í Suðvesturkjördæmi fyrir kosningarnar vorið 2018.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila